16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3936 í B-deild Alþingistíðinda. (3544)

365. mál, lausaskuldir bænda

Frsm. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. landbn. Ed. Alþingis sem lagt er fram á þskj. 854. Nefndin mælir með því að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Nd.

Þetta frv, er í rauninni fylgifrv, með frv. um Stofnlánadeild landbúnaðarins þar sem kveðið er á um heimild til stjórnenda veðdeildarinnar að yfirfæra þær skuldbindingar, sem hún er í gagnvart lausaskuldum bænda, yfir í Stofnlánadeildina.

Undir nál. rita allir nefndarmenn nöfn sín nema Kolbrún Jónsdóttir sem var fjarstödd við afgreiðslu málsins.