16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3936 í B-deild Alþingistíðinda. (3545)

365. mál, lausaskuldir bænda

Kolbrún Jónsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil bara að það komi fram í þessari umræðu, þar sem ég gat ekki verið viðstödd á þeim nefndarfundi þegar þetta mál var afgreitt, að ég er þessu alveg sammála. Ég tel það vera til einföldunar og bóta að lausaskuldir bænda skuli vera hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins og tel það í einu og öllu eðlilegt.