16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3937 í B-deild Alþingistíðinda. (3547)

275. mál, öryggi á vinnustöðum

Frsm. (Jón Sveinsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 46 frá 28. maí 1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Nefndin hefur rætt það frv. sem hér um ræðir og mælir með því að það verði samþykkt óbreytt. Frv. sem slíkt þarfnast ekki sérstakrar skýringar svo stutt sem það er. Undir álitið rita allir nefndarmenn svo sem fram kemur í nál.