16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3937 í B-deild Alþingistíðinda. (3551)

366. mál, Innheimtustofnun sveitarfélaga

Frsm. (Jón Sveinsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 54 frá 6. apríl 1971, um Innheimtustofnun sveitarfélaga.

Nefndin hefur rætt það frv. sem hér um ræðir og mælir eindregið með því að það verði samþykkt óbreytt. Undir nál. rita allir nefndarmenn félmn.

Um frv. sem slíkt er ekki mjög mikið að segja. Það tekur til dráttarvaxta á meðlagsgreiðslum svo sem kunnugt er og horfir það til bóta.