16.04.1986
Neðri deild: 81. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3978 í B-deild Alþingistíðinda. (3639)

272. mál, ríkisendurskoðun

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 862 um frv. til l. um ríkisendurskoðun frá fjh.- og viðskn. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta frv. og mælir einróma með samþykkt þess. Kristófer Már Kristinsson mun ekki hafa verið viðstaddur á þeim fundi þar sem málið var afgreitt á og ekki heldur Ólafur G. Einarsson.