18.04.1986
Efri deild: 79. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4077 í B-deild Alþingistíðinda. (3742)

295. mál, sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum

Frsm. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram við 2. umr. þessa máls óskaði allshn. eftir að fá málið til athugunar milli 2. og 3. umr. vegna grg. sem hafði borist nefndinni frá rannsóknarlögreglustjóra ríkisins. Nefndin hefur farið yfir þá grg. en leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það var samþykkt við 2. umr. málsins.