21.04.1986
Efri deild: 83. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4249 í B-deild Alþingistíðinda. (3951)

236. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Eins og fram kom hjá hv. 4. þm. Austurl. hefur nefndin óskað eftir að skoða málið áður en endanleg atkvæðagreiðsla fer fram. Sér forseti ekki ástæðu til annars og því verður málinu enn frestað þar til nefndin hefur fengið tækifæri til að athuga það.

Umr. frestað.