21.04.1986
Efri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4278 í B-deild Alþingistíðinda. (4011)
368. mál, selveiðar við Ísland
Egill Jónsson:
Virðulegur forseti. Það virðist kannske sannast hér eins og stundum endranær að kapp sé best með forsjá. Og eftir þeim skýringum sem eru komnar fram frá hv. 4. þm. Vesturl. dugði að telja saman liðið til þess að menn treystu sér að halda út í þessa umræðu og þessa afgreiðslu. En það sem ég legg sérstaklega áherslu á í þessum efnum er að það komi að sjálfsögðu fram nál. og að allir málsaðilar í sjútvn., sem þurfa að skýra sína afstöðu, leggi sitt álit fram. Því það er að sjálfsögðu ekki fyrr en nál. liggja fyrir að einstakir þm. geta farið að taka sig saman um brtt. Vera má að í brtt. sem koma fram við nál. felist einhver þau atriði sem annars kæmu fram í brtt. frá einstökum þm. Ég tel því afar óeðlilegt að þessi umræða hefjist öðruvísi en að nál. liggi fyrir.