21.04.1986
Efri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4280 í B-deild Alþingistíðinda. (4016)
368. mál, selveiðar við Ísland
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Forseti vill að sjálfsögðu taka til greina það sem hefur komið fram í þessu máli og þær eindregnu óskir um að fresta því. Það er ekki ástæða til annars en að taka slíkar beinar óskir til greina þar sem það liggur fyrir að hér hafa orðið þau mistök að nál. sem átti að koma fram hefur ekki komið fram.