22.04.1986
Neðri deild: 94. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4359 í B-deild Alþingistíðinda. (4121)

16. mál, húsnæðissparnaðarreikningar

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Með vísan til þess að hæstv. félmrh. hefur fyrir hönd síns ráðuneytis lýst yfir stuðningi við meginefni frv. og lagt fram tillögu um orðalagsbreytingu lýsi ég því yfir að ég er reiðubúinn til að styðja þessa tillögu hæstv. félmrh. þótt hann sé ekki tilbúinn til þess sjálfur og segi því nei um að vísa frv. til ríkisstj.