22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4443 í B-deild Alþingistíðinda. (4203)

Úthlutun raðsmíðaskipa

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég ætla aðeins að svara þeirri spurningu sem til mín var beint.

Það liggur fyrir í þeim skjölum sem frá nefndinni komu, sem um þetta mál fjallaði, að hún lagði til að það yrði gengið til samninga við Útgerðarfélag Kópaskers, en að öðru leyti fjallaði nefndin ekki um málið eða þá stöðu sem kom upp við það að samningar voru ekki gerðir við það félag.