22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4450 í B-deild Alþingistíðinda. (4216)
277. mál, rannsókna- og tilaraunastöð fiskeldis
Frsm. (Björn Dagbjartsson):
Herra forseti. Atvmn., sem ég mæli hér fyrir áliti frá, varð sammála um það að vísa þessari till. minni til ríkisstjórnarinnar með ákveðnum formála. Tillgr., sem um ræðir, hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela landbrh. að beita nú þegar heimild í 62. gr. laga nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, og standa fyrir myndun félagsskapar ríkisins og þeirra, er fiskeldi stunda, um rekstur rannsókna- og tilraunastöðvar. Fiskeldisstöðin í Kollafirði verði rekin af slíkum félagsskap sem tilraunastöð fyrir erfðafræðirannsóknir og kynbætur á eldisfiskum, til lífeðlisfræðirannsókna, svo og til rannsókna á fisksjúkdómum og verði með aðstöðu til leiðbeiningar og fræðslu um varnir gegn fisksjúkdómum, fóðrun fiska og aðra þýðingarmikla þætti ferskvatns- og sjávareldis.“
Umsagnir, sem bárust um tillöguna, voru jákvæðar. Það komu að vísu fram einstakar efasemdir. Það voru allir sammála um að það þyrfti að efla rannsóknir og tilraunir á sviði þessarar nýju búgreinar og að tilraunaaðstaða væri frumskilyrði þess að rannsóknir beri árangur. Athugasemdir voru einkum í þá veru hvort tíminn væri réttur til þess að byrja svo stórt, hvort stöðin í Kollafirði væri heppilegur staður og eins hvort fisksjúkdómarannsóknir væri heppilegt að stunda í almennri stöð.
Ég tel hiklaust að þó að þessar athugasemdir eigi allar rétt á sér séu þær engan veginn einhlítar. Ég tel að tíminn sé tvímælalaust kominn. Kollafjörður hefur sína galla sem staður en það hafa líka aðrir staðir sem til greina kæmu og fisksjúkdómalækningar þurfa aðstöðu ef þær eiga að bera árangur.
Eins og segir í grg. var niðurstaðan sem sagt þessi. Það er að vísu ekki ljóst hvert verður framhaldið á störfum þeirrar nefndar sem forsrh. hefur enn að störfum. Við treystum því að nefndin, ef hún starfar áfram, taki fullt tillit til efnis tillögunnar en verði hún leyst frá að hæstv. landbrh. beini málinu í réttan farveg. Það eru ýmsir sem telja að það að vísa þáltill. til ríkisstjórnar sé aðeins virðulegra form á útför slíkra tillagna. Ég er alls ekki þeirrar skoðunar. Ég tel a.m.k. að þetta afkvæmi mitt eigi upprisuna vísa. Atvmn., sem ég þakka samstarfið í vetur og sérstaklega formanninum, mæltist til þess að ég mælti fyrir þessari till. til þess eins að sýna hina gífurlegu samstöðu í nefndinni.