23.04.1986
Efri deild: 88. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4506 í B-deild Alþingistíðinda. (4270)

409. mál, Iðnlánasjóður

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstvirtur forseti. Í hv. Nd. var gerð smávægileg breyting á þessu frv. frá því sem það var afgreitt hér í deildinni. Ég hef borið mig saman við nefndarmenn í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar og við erum sammála um að mæla með því að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Nd.