23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4524 í B-deild Alþingistíðinda. (4298)
423. mál, áfengislög
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Forseti vill gjarnan taka undir það að það hefur verið létt verk fyrir hann að stjórna þessari deild, ekki vegna þess að svo fá mál hafi verið af hendi stjórnarandstöðunnar heldur og miklu frekar vegna þess að stjórnarandstaðan hefur verið mjög samvinnugóð, einnig varðandi mál ríkisstj.