23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4526 í B-deild Alþingistíðinda. (4307)

332. mál, áfengislög

Davíð Aðalsteinsson:

Hæstv. forseti. Sú málsmeðferð, sem hér er lögð til, er öðruvísi en samþykkt var hér í deildinni á liðnum vetri. Þá var ég meðmæltur því fyrirkomulagi þjóðaratkvæðis sem þá var lagt til. Hér er um annars konar málsmeðferð að ræða. Ég hef ekki skipt um skoðun frá því á liðnum vetri og segi því nei.