23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4526 í B-deild Alþingistíðinda. (4308)

332. mál, áfengislög

Egill Jónsson:

Virðulegi forseti. Með því að þessi atkvæðagreiðsla er einvörðungu skoðanakönnun í þessari hv. deild og þrátt fyrir það að till. sem slík komi til móts við þau sjónarmið sem ég studdi hér fyrir einu ári síðan og með tilliti til þess hvernig þetta mál ber að tek ég ekki þátt í atkvæðagreiðslu núna.