23.04.1986
Neðri deild: 98. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4554 í B-deild Alþingistíðinda. (4351)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Það er ljóst að rekstur Arnarflugs stöðvast verði umrædd sjálfskuldarábyrgð ekki veitt. Hún tryggir hins vegar á engan hátt framtíð félagsins, það er ljóst. En með tilliti til afkomu starfsmanna fyrirtækisins og í trausti þess að skynsamleg samvinna takist á milli Flugleiða og Arnarflugs í stað þeirra strákslegu vinnubragða sem viðgengist hafa af beggja hálfu og í trausti þess að fjmrn. hafi strangt eftirlit með þróun fyrirtækisins segi ég nei.