23.04.1986
Efri deild: 91. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4565 í B-deild Alþingistíðinda. (4376)
442. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Frsm. meiri hl. (Davíð Aðalsteinsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 60 frá 1984, sbr. lög nr. 77 frá 1985.
Félmn. hefur fjallað um þetta mál. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd.
Eins og fram kemur í nál. meiri hl. félmn. unnu nefndir beggja deilda saman að athugun frv. Meiri hl. félmn. Ed. er í meginatriðum samþykkur áliti meiri hl. félmn. Nd., en vill þó árétta nokkur atriði.
Nefndin telur ekki nauðsynlegt að setja í frv. ákvæði um ráðstöfun þeirra 300 millj. kr. sem gert er ráð fyrir í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins og ríkisstj. að verði varið til aðgerða til lausnar á greiðsluerfiðleikum þeirra sem byggðu eða keyptu húsnæði 1980 eða síðar. Nefndin leggur hins vegar áherslu á að þeirri aðstoð, sem í ráðstöfun þessa fjár felst, verði hraðað. Þá leggur meiri hl. nefndarinnar áherslu á að staðið verði við þau fyrirheit sem gefin hafa verið húsbyggjendum og húskaupendum um lengingu lánstíma í bönkum og sparisjóðum. Enn fremur vill meiri hl. nefndarinnar minna á að aðstaða lífeyrissjóða getur verið misjöfn vegna annarra fjárskuldbindinga lífeyrissjóðanna. Meiri hl. nefndarinnar vill jafnframt benda á að taka þarf til athugunar rétt þeirra til húsnæðislána sem minnka við sig húsnæði. Það skal tekið fram að hv. þm. Magnús H. Magnússon sat fund nefndarinnar sem fjallaði um þetta mál.
Ég sé ekki ástæðu til þess að vera með málalengingar. Hv. þm. er nokkuð kunnugt um efni þessa frv. og aðdraganda. Undir nál. meiri hl. rita, auk þess sem hér stendur, hv. þm. Sturla Böðvarsson, Björn Dagbjartsson, Helgi Seljan og Salome Þorkelsdóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir ritar undir nál. með fyrirvara. Hv. þm. Stefán Benediktsson mun væntanlega gera grein fyrir sínu áliti hér á eftir.