23.04.1986
Neðri deild: 101. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4607 í B-deild Alþingistíðinda. (4434)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Ingvar Gíslason):

Nú er komið að starfslokum í hv. þingdeild. Þetta er síðasti fundur deildarinnar. Af því tilefni leyfi ég mér að þakka hv. þingdeildarmönnum ágætt samstarf og ánægjulegar samvistir á þessu þingi, Ég þakka varaforsetum mikilvæga aðstoð við mig, svo og skrifurum deildarinnar. Skrifstofustjóra og starfsliði þingsins öllu þakka ég störf og samstarf við mig.

Ég óska þingdeildarmönnum og fjölskyldum þeirra allra heilla og velfarnaðar á komandi sumri og ég óska þeim einnig góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.