14.11.1985
Sameinað þing: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (475)
45. mál, leit að brjóstakrabbameini
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Á síðasta þingi fluttu þm. Kvennalista svohljóðandi þáltill.:
„Alþingi ályktar að skora á heilbrmrh. að tryggja að komið verði á kerfisbundinni leit að brjóstakrabbameini hjá konum með brjóstamyndatöku (mammografi). Hópskoðun þessi verði hafin eins fljótt og unnt er.“
Till. var afgreidd frá hv. allshn. með lítillega breyttu orðalagi þar sem skorað var á ríkisstj. í stað heilbrmrh. og var till. samþykkt þannig samhljóða þann 9. maí s.l. Mælt var fyrir till. í október 1984 og hún kom aftur til umræðu þann 7. maí 1985, en í apríl s.l. voru birtar niðurstöður sænskrar langtímarannsóknar á gildi skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini með röntgenmyndatöku af brjóstum. Þessar niðurstöður hvetja mjög til þess að slík leit verði hafin sem fyrst. Um var að ræða skipulega skoðun á 135 þúsund sænskum konum á aldrinum 40-75 ára sem skoðaðar voru einungis með röntgenmyndatöku af brjóstum á tveggja til þriggja ára fresti á átta ára rannsóknartímabili. Meginniðurstaða þessarar rannsóknar er sú að slík skoðun leiddi til 31% lækkunar á dánartíðni þessa aldurshóps kvenna úr brjóstakrabbameini. Fram hjá slíkum niðurstöðum verður ekki gengið.
Í umræðum þann 7. maí s.l. kom fram í orðum hæstv. þáv. ráðherra um þetta mál að hann hafði greinilega bæði skilning á mikilvægi þessa verkefnis og fullan hug á því að koma því í framkvæmd. Ég hygg að hæstv. núv. heilbrmrh. hafi jafnvel enn betri skilning á mikilvægi þessa máls fyrir konur og væntanlega enn meiri vilja til að beita sér í þessu máli, ekki síst nú í lok kvennaáratugarins, og því vil ég spyrja: Hvað líður undirbúningi að skipulegri leit að brjóstakrabbameini meðal kvenna með röntgenmyndatöku (mammografi)?