14.11.1985
Sameinað þing: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (478)
46. mál, athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Í byrjun síðasta þings fluttum við þm. Kvennalista svohljóðandi þáltill.:
„Alþingi ályktar að fela heilbrrh. að skipa þriggja manna nefnd sem leggi fram ákveðnar tillögur um það hvernig best sé að veita athvarf og heilbrigðislega og félagslega þjónustu þeim börnum og unglingum yngri en 18 ára sem eru illa haldin andlega og líkamlega vegna fíkniefnaneyslu.“ Farið var fram á það að nefndin skilaði niðurstöðu fyrir 1. maí 1985.
Tillaga þessi var flutt til að leita úrbóta á vanda tiltölulega fámenns hóps barna og unglinga sem eru illa stödd vegna fíkniefnaneyslu. Aldurs síns vegna eiga þau ekki greiða leið inn á meðferðarstofnanir og í reynd er ekki til stofnun sem hentar þeim. Meðferðarúrræði þarf að finna, bæði vegna þessara einstaklinga sjálfra og eins vegna þess að þeir mynda svokallaðan harðan kjarna neytenda sem síðan laða að sér aðra einstaklinga. Því má ekki gleyma að margir nýir neytendur fíkniefna verða til vegna þrýstings þeirra sem fyrir eru.
Þann 27. mars s.l. kom svo tillagan frá hv. allshn. Sþ. og var nefndin einhuga um að mikil nauðsyn sé á athvarfi fyrir unga fíkniefnaneytendur og öllum þeim aðgerðum sem til lausnar megi verða á vanda þeirra sem hafa ánetjast vímuefnum. Hins vegar taldi nefndin ekki rétt að skipa þriggja manna nefnd, eins og kveðið var á um í þáltill., vegna þess að stjórnskipuð nefnd ynni nú þegar að því að endurskoða öll geðheilbrigðismál hér á landi. Þessi nefnd var skipuð í júlí 1981 og valdi hún sér undirnefnd sem fjalla átti sérstaklega um geðheilbrigðismál barna og unglinga. Undirnefndin hugðist ljúka verki sínu og skila heildartillögum fyrir 1. apríl s.l. Því þótti hv. allshn. réttara að bíða eftir tillögum hennar og vísa málinu til ríkisstj.
Þingmönnum Kvennalista þótti rétt að spara nefndarstörf þar sem þeirra væri ekki bein þörf og sættu sig vel við þessa afgreiðslu málsins þar sem almennur skilningur og vilji til þess að leysa þennan vanda virtist ríkja meðal hv. nm. og reyndar þeirra hv. þm. sem tóku til máls þegar mælt var fyrir þáltill.
Nú er kominn nóvember og því rúmt hálft ár síðan umræddar niðurstöður undirnefndarinnar áttu að liggja fyrir. Því spyr ég hæstv. heilbr.- og trmrh.:
1. Hefur undirnefnd þeirrar nefndar um geðheilbrigðismál, er skipuð var af heilbr.- og trmrh. 15. júlí 1981 og hefur fjallað sérstaklega um geðheilbrigðismál barna og unglinga, m.a. vandamál vegna fíkniefnaneyslu, skilað heildartillögum eins og áætlað var?
2. Hverjar eru tillögur hennar til úrbóta varðandi athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur?
3. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við tillögum undirnefndarinnar í þessum efnum?