18.11.1985
Efri deild: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (519)
119. mál, Hitaveita Suðurnesja
Samgrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af þeim athugasemdum sem hér hafa komið fram langar mig að segja nokkur orð, fyrst út af athugasemd hv. 6. landsk. þm. Ég bendi á að til þess að öll sveitarfélög fengju fulltrúa er farið inn á fjölgun úr fimm í níu. Ég hefði vel getað skilið að hefðu verið aðeins fimm stjórnarmenn áfram hefði ríkissjóður orðið að láta sér nægja að hafa einn stjórnarmann, en ef við lítum á sveitarfélögin sem eina heild eru þau sjö og þá er meðaltal sveitarfélaga ca. 11,4 en meðaltal ríkisins 10% á hvern stjórnarmann. En þarna eru mannfáir hreppar sem fá fulltrúa, eins og Hafnahreppur sem er með 0,69% eignaraðild og Vatnsleysustrandarhreppur, Gerðahreppur og Miðneshreppur sem allir hafa á milli rúmlega 3,5% og 7%.
Hins vegar hefur mér verið sagt að ákvæði 3. gr. hafi komið inn til að tryggja frekar hina stærri hreppa ef til einhvers ágreinings kemur. Þá kemur athugasemd hv. 5. þm. Vesturl. eiginlega úr hinni áttinni. Ég tel líka eðlilegt að það sé tekið meira tillit til þeirra sem eru stærri eignaraðilar. Fyrir því er nokkurn veginn séð með ákvæðinu í 3, gr. En þó er sagt hér að undirskrift meiri hluta stjórnar bindi fyrirtækið. Ég lít svo á að það þurfi tölu meiri hluta til að binda fyrirtækið, þ.e. að t.d. tveir stærstu aðilarnir geti ekki bundið það og þar með þrír stjórnarmenn af níu. Það tel ég alveg útilokað. Ég held að skýring lögfróðra manna hljóti að vera í svipuðum dúr og mín. Það kemur í veg fyrir að stærstu aðilarnir geti gersamlega ráðskast með og bundið fyrirtækið. Þeir stærri hafa með ákvæði 3. gr. meiri ítök, en þeir geta ekki gert það einir. Þetta er mín skoðun. Hins vegar skoðar nefndin þetta ákvæði.
Ég bendi á að hér er um samning að ræða sem ríkissjóður eða iðnrh. fyrir hönd ríkisstjórnar gerði við sveitarfélög á Suðurnesjum, auðvitað að því tilskildu að Alþingi samþykkti, eins og alltaf er gert í þessum efnum. En ég treysti nefndinni til að ræða ítarlega þessar athugasemdir.