20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (619)

5. mál, jarðhitaréttindi

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Í ljósi þess að hér er um eignarréttarmál að ræða og það hefur verið flutt alloft án þess að komast lengra en til iðnn. og eins hins að 1. flm. situr í iðnn. og ekki er sanngjarnt að hann sé umsagnaraðili um eigin mál tel ég rétt að vísa málinu til allshn.