20.11.1985
Neðri deild: 17. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

59. mál, orka fallvatna

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég hygg að þessi túlkun sé ekki rétt hjá hv. þm. samkvæmt dagskrá er málið til framhalds 1. umræðu, atkvgr., og að sjálfsögðu hefur ætíð verið svo að á því stigi komi upp hugmyndir manna um nefndir og ég held því að það sé ekkert efamál að þessi tillaga er rétt fram komin.