28.11.1985
Sameinað þing: 23. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (775)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Haraldur Ólafsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til meðferðar kjörbréf Grétars Þorsteinssonar, 2. varamanns G-listans í Reykjavíkurkjördæmi, og hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréfið og leggur samhljóða til að það verði samþykkt.