03.12.1985
Efri deild: 22. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (876)
127. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Frsm. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég kem ekki hingað í ræðustól til þess að svara fyrir hæstv. fyrrv. fjmrh., núv. iðnrh. Hann stendur fyrir sínum skoðunum sjálfur þegar þeir skiptast á skoðunum, hann og hv. 5. landsk. þm., þótt síðar verði, eins og hann orðar það. Ég hygg að minn flokkur hafi staðið að þessari skattlagningu þegar hún var sett á og ég er þeirrar sömu skoðunar enn að þessir aðilar verði að gangast undir það að greiða þennan skatt til samfélagsins og ég stend að sjálfsögðu við það að halda honum áfram og hef ekki fleira um það að segja.
Síðasti hv. ræðumaður kom inn á frestun á lækkun tekjuskatts eins og boðað hafði verið. Ég tel að aðstæður geti breyst þannig að þó að menn hafi sett sér þetta takmark að lækka tekjuskatta eða afnema þá geti það verið fullkomlega réttlætanlegt að hverfa frá því við aðstæður eins og nú eru í ríkisfjármálum og ekki þurfi að vera um nein svik að ræða í því sambandi. Hér var einfaldlega um að ræða val á milli þess að leggja á neysluskatta eða tekjuskatt. Og ég lýsi því yfir sem minni skoðun að ég tek tekjuskattinn fram yfir vörugjöld á brauð og annað slíkt þannig að þessi málalok eru mér að skapi hvað sem um það má svo aftur segja. Ég tel að aðstæður séu þannig í þjóðfélaginu nú að við getum ekki horfið frá þessari skattheimtu. Það má svo hver nefna það þeim nöfnum sem hann lystir.
Ég vildi aðeins láta þetta koma fram, af því að það var komið inn á þetta, þó að tekjuskatturinn sé ekki til umræðu undir þessum dagskrárlið.