05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (917)

86. mál, bann gegn geimvopnum

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Samkvæmt málvenju hér hefur orðið „jafnaðarmaður“ einkum og fyrst og fremst verið notað um þá sem eru innan vébanda Alþfl. Á alþjóðavettvangi er til Alþjóðasamband jafnaðarmanna og Alþfl. er aðili að því. En ég ætla ekki að fara að deila hér um þetta. Vonandi verða sem flestir jafnaðarmenn hér og sem flestir innan vébanda þess flokks sem á aðild að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna.