10.12.1985
Sameinað þing: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (971)
Um þingsköp
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það skal tekið fram, af því að hér hefur borist í tal spurningin um hvort ætti að útvarpa utandagskrárumræðu á fundinum síðar í dag, að Ríkisútvarpið mæltist til þess við forseta að það væri gert, en þó með þeim vandkvæðum að það var mjög takmarkaður tími sem hægt var að ætla fyrir þetta útvarp. Það var samhljóða álit forseta og fulltrúa Ríkisútvarpsins að undir þeim kringumstæðum sem nú eru væri ekki rétt að útvarpa umræðunni í dag, enda var gefið að það yrði útvarpað umræðu síðar í vikunni.
Þetta skal tekið fram og hv. 5. landsk. þm. kom hvergi nærri þessum ráðagerðum og niðurstöðu.