10.12.1985
Sameinað þing: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (987)

130. mál, endurnýjun á Sjóla GK

Fyrirspyrjandi (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra svörin. Það vekur auðvitað spurningar í huga manns hvers vegna ekki hafi fengist niðurstaða í þessu máli fyrr. Nú þekkjum við það að fyrirspurnir geta vitaskuld borist með mismunandi hætti og ekki ævinlega skriflega, en aðalatriðið er þó að úrlausn sé fundin og ég þakka ráðherra svörin.