02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1092)

165. mál, herflugvöllur á Norðurlandi

Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það var aðeins út af því sem hv. 5. þm. Austurl. sagði varðandi svör mín áðan. Er ekki alveg ljóst hvernig svara á fsp. sem borin er fram í dag og ekki var hægt að hafa til meðferðar fyrir viku? Hv. þm. sagði að ég hefði átt að svara henni fyrir viku. Það liggur alveg í augum uppi að henni gat ég ekki svarað fyrr en fyrirspyrjandi hafði haft tækifæri til að tala fyrir henni.