03.12.1986
Efri deild: 16. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)

209. mál, sjómannadagur

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Varðandi orð hv. 5. landsk. þm. um að vísa þessu máli til sjútvn., eins og hér var lagt til af hæstv. ráðh., þá verður það að sjálfsögðu gert. En eins og hann réttilega gat um hefur frv. svipaðs efnis farið nú þegar til allshn. Því verður að sjálfsögðu beint til formanns allshn. að það frv. verði sent til umsagnar til hv. sjútvn. jafnhliða því sem unnið verður að þessu máli.