08.12.1986
Neðri deild: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)
228. mál, Kjaradómur
Forseti (Ingvar Gíslason):
Hæstv. fjmrh. hefur uppi tillögu um að vísa þessu máli til fjh.- og viðskn. og það kann að vera að það sé ekkert sem skaðar það. En yfirleitt mun þessu hafa verið vísað til allshn. (Gripið fram í: Eða félmn.) en varla félmn. Hins vegar geta verið aðrar aðstæður sem valda því að það sé skynsamlegt að þetta gangi til þeirrar nefndar sem hér er lagt til.