09.12.1986
Sameinað þing: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)
Svör við skriflegum fyrirspurnum
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil í tilefni af þessari umræðu benda á að ég hef lagt fram í þinginu fyrir löngu, tveimur mánuðum, fyrirspurnir með beiðni um skrifleg svör til hæstv. utanrrh. Annars vegar er fsp. á þskj. 42 til utanrrh. um varnarsvæði, sem svo eru kölluð, og hins vegar er um að ræða fsp. á þskj. 61 til utanrrh. um viðskipti íslenskra fyrirtækja við bandaríska herinn. Mér þætti vænt um ef hæstv. forseti Sþ. gæti greint frá því hvenær þess er að vænta að svör við þessum fyrirspurnum birtist Alþingi.