09.12.1986
Sameinað þing: 27. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (1293)

Fjarvera þingmanna og ráðherra

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil láta koma fram að það er ekki eins og það sé enginn ráðherra mættur hér. Ég sé ekki annað en við séum hér alveg örugglega þrír. Ég var mættur hér til að svara m.a. fsp., en fyrirspyrjanda vantaði. Það er því kannske við aðra að sakast. Ef það er meiri hluti þm. mættur eru fjögur mál á dagskránni sem aðeins er atkvæðagreiðsla um.