10.12.1986
Efri deild: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í B-deild Alþingistíðinda. (1295)
103. mál, tékkar
Frsm. fjh.- og viðskn. (Jón Kristjánsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til l. um tékka. Þetta frv. er í sjálfu sér einfalt í sniðum. Nefndin hefur rætt það og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.