11.12.1986
Sameinað þing: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1502 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)

Viðvera ráðherra

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Ég skal ekki meta hversu áríðandi þetta er, en ég bar fram eina litla spurningu áðan í máli mínu og vísaði henni annaðhvort til forseta eða til ráðherra. Þar sem ráðherra er ekki enn farinn úr húsinu datt mér í hug að ítreka hana því að sýnt er að umræða um þetta mál, sem hér var borin fram fsp. um, mun verða þó nokkuð mikil við fjárlagaumræðuna á morgun. Það er spurningin hvort ráðherrann verður viðstödd þessa umræðu.