15.12.1986
Efri deild: 19. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1708 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)

253. mál, heilbrigðisþjónusta

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Frú forseti. Hér er enn á ný þess farið á leit við hv. Alþingi að framlengt verði bráðabirgðaákvæði það sem er í niðurlagi laganna um heilbrigðisþjónustu frá 1983, en víst kannast hv. alþm. við það að þetta hefur verið framlengt hvað eftir annað vegna þess að Reykvíkingar hafa ekki verið tilbúnir til þess að láta lögin um heilbrigðisþjónustu að því er fyrirkomulag heilsugæslu varðar taka gildi til fulls hér í borginni. Menn hafa ekki verið tilbúnir til þess að afnema í einni svipan það fyrirkomulag sem gildir um heimilislækna samkvæmt svokölluðu númerakerfi á vegum sjúkrasamlagsins. Og vegna þess að önnur skipan hefur ekki verið ákveðin enn, þá er þetta frv. nú flutt og er bundið við áramót.

Ég vil geta þess í þessu sambandi að í undirbúningi er að leggja fram frv. einmitt um heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu sem unnið var í tíð forvera míns, hæstv. núv. samgrh. Matthíasar Bjarnasonar, en það gerði ráð fyrir að verulega aukið vald væri fært til sveitarfélaga á þessu svæði í þessum efnum og opnað svigrúm fyrir sveitarfélögin til að semja við einkafyrirtæki til að leysa þetta verkefni af hendi. En þetta frv. hafði ég hugsað mér að leggja fram sem næst því í óbreyttri mynd sem það hafði verið unnið fyrir forvera minn þannig að Alþingi gæfist kostur á að fjalla um það mál og gera þá hugsanlega þær breytingar á því sem mönnum sýndust nauðsynlegar. Það er ljóst að þetta getur ekki orðið fyrir áramót og því er nauðsynlegt að fá heimild Alþingis til þess að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði á meðan svo stendur.

Ég leyfi mér, frú forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.