15.12.1986
Neðri deild: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)

227. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Á þskj. 277 er að finna nál. fjh.- og viðskn. sem mælir með samþykkt þessa frv. Undir það rita allir nefndarmenn, þó einn þeirra með fyrirvara, hv. 3. þm. Reykv., Svavar Gestsson, og hefur hann þegar í umræðunum um annað mál gert grein fyrir sínum fyrirvara og sömuleiðis hefur komið fram afstaða 3. landsk. þm., Guðrúnar Agnarsdóttur.