15.12.1986
Efri deild: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)
116. mál, verkfall félagsmanna í Skipstjórafélagi Íslands
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Það fór eins í þessu máli og því er var verið að afgreiða fyrr að minni hl. nefndarinnar, þau er ég nefndi áðan, lögðust gegn samþykkt þessa frv. Þessi lög, sem hér er verið að fjalla um, eru reyndar að renna út nú um áramótin þannig að í sjálfu sér er ansi mikið gagnsleysi að samþykkja þetta í staðinn fyrir að láta þetta eiga sig. En hér er á ferðinni nokkru öðruvísi mál en það sem hér var verið að fjalla um áður. Hér var ekki verið að deila fyrst og fremst um laun heldur var verið að deila um kjör. Það var verið að deila um lífeyrissjóðsréttindi þeirra manna sem í hlut eiga. Ríkisstjórnin taldi ástæðu til að grípa inn í þar til að meina þessum aðilum að leita réttar síns með verkfallsréttinum til að ná svipuðum kjörum og aðrir í sjómannastétt hafa þegar fengið.
Við munum greiða atkvæði gegn þessu frv. þó lífdagar þessara laga séu ekki margir sem eftir eru.