15.12.1986
Efri deild: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)

223. mál, lögreglumenn

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Frv. þetta um breytingu á lögum um lögreglumenn nr. 56/1972 er flutt í tengslum við frv. til laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna og frv. til laga um breytingu á lögum nr. 38 1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Eins og hér hefur komið fram hefur náðst samstaða um þessi frv. milli samtaka starfsmanna og ríkisstjórnar.

Í frv. því sem hér liggur fyrir er lagt til að lögreglumenn ríkisins megi hvorki gera verkfall né taka þátt í verkfallsboðun. Til lögreglumanna ríkisins teljast auk lögreglumanna tollverðir og áhafnir varðskipanna. Í lögum um Landhelgisgæsluna eru ákvæði sem undanþiggja starfsmenn hennar verkfallsþátttöku og verkfallsboðun þannig að ekki er um að ræða breytingu á réttarstöðu þeirra.

Samkomulag er milli stjórnvalda og Landssambands lögreglumanna og Tollvarðafélags Íslands um að hinn mikilsverði og viðkvæmi starfsvettvangur þeirra verði ekki gerður að ágreiningsefni eða dreginn inn í verkfallsátök heldur aðrar leiðir farnar til úrlausnar á hugsanlegum kjaradeilum þeirra og stjórnvalda. Að öðru leyti leyfi ég mér að vísa til athugasemdar við lagafrv. um aðdraganda þess og undirbúning.

Ég vil geta þess að í Nd. hefur verið lagt fram frv. um breytingu á lögum um fangelsi og vinnuhæli þar sem er gert ráð fyrir að fangaverðir fái sambærilega réttarstöðu.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. um lögreglumenn vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.