16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1799 í B-deild Alþingistíðinda. (1591)
Fyrirspurn um fjárhagsvanda Þjóðleikhússins
Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Svo sérkennilega hefur til tekist að skrifstofustjóri menntmrn. er á öðrum löndum í nauðsynlegum erindum og þrátt fyrir mikinn reka sem gerður hefur verið að því að finna svar við fsp. hv. 10. landsk. þm. hefur það ekki enn tekist. Ég legg til við hæstv. forseta að hann taki þessa fsp. á dagskrá og ég, eftir því sem efni standa til, minni mitt endist og aðrir kunnugleikar á viðfangsefninu, mun reyna að sitja fyrir svörum.