16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)

Fyrirspurn um umhverfismál

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Ég vildi aðeins spyrja: Hvað dvelur orminn langa? Hvers vegna er ekki 2. mál á dagskrá tekið fyrir eins og hv. 7. landsk. þm. spurði um áðan og sem var komið vel hálfa leið á áfangastað fyrr á þessum fundi? Hvað veldur því að það er ekki tekið fyrir nú?