17.12.1986
Neðri deild: 24. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1771)
Afgreiðsla frumvarps til stjórnarskipunarlaga
Forseti (Ingvar Gíslason):
Út af þessum umræðum um þingsköp vill forseti taka fram að hann hefur fullan hug á því að 9. dagskrármálið verði tekið fyrir þó að síðar verði. Það er enginn áhugi hjá forseta að hafa þetta mál í neinum undandrætti.