18.12.1986
Efri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1975 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)

Afgreiðsla mála í efri deild

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Forseti hafði ekki gert sér grein fyrir því að nál. væri ekki komið inn á borð þm. og þess vegna er sjálfsagt að athuga það mál. Það er e.t.v. rétt að nota tímann á meðan til þess að greina frá því að eftir þann fund sem haldinn var með forsetum og formönnum þingflokka, hefur niðurstaðan orðið sú að hér verður ekki kvöldfundur í kvöld og það verða fundir í þessari hv. deild eftir fundi í sameinuðu þingi á morgun.