20.12.1986
Efri deild: 27. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2167 í B-deild Alþingistíðinda. (2015)

Tilhögun þingfundar

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Eftir mínum kokkabókum mun nú vera kominn 20. des. en samkvæmt þeirri dagskrá sem hér hefur verið dreift erum við boðaðir til fundar 19. des. Ég vil spyrja virðulegan forseta hvort það sé samkvæmt þingsköpum að fara eftir dagskrá sem hljóðar upp á annan dag og þann dag sem liðinn er.