20.12.1986
Neðri deild: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2203 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Hér er flutt till. um að fella niður skerðingu á Atvinnuleysistryggingasjóði. Verði till. mín samþykkt þá sleppur þetta þing við þá smán að vera fyrsta þingið frá því Atvinnuleysistryggingasjóður varð til 1955 sem ræðst að þessum sjóði verkalýðshreyfingarinnar. Ég segi já.