20.12.1986
Efri deild: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2221 í B-deild Alþingistíðinda. (2095)

Þingfrestun

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Fyrir hönd okkar þingdeildarmanna vil ég þakka hlý orð og góðar óskir okkur til handa og fjölskyldum okkar frá forseta þessarar hv. deildar. Ég vil einnig fyrir hönd okkar allra þakka forseta mjög góða samvinnu í hvívetna og röggsama og ekki síður réttláta fundarstjórn á þessum annríkisdögum sem hér hafa verið að undanförnu og nóttum ætti nú raunar að segja líka. Við færum forseta og fjölskyldu hennar okkar bestu jóla- og nýársóskir og ég læt í ljós þá von að við megum öll hittast hér heil á nýju ári. Ég tek undir óskir og þakkir forseta til skrifstofustjóra og starfsmanna þingsins fyrir gott samstarf og mjög vel unnin störf á þessu hausti og sérstaklega síðustu daga. Ég vil biðja hv. þingdeildarmenn að staðfesta þessar óskir og þakkir til forseta deildarinnar með því að rísa úr sætum. - [Deildarmenn risu úr sætum.]