22.10.1986
Neðri deild: 5. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (210)
52. mál, umferðarlög
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég vildi spyrja hvort hæstv. dómsmrh. gæti verið viðstaddur þessa umræðu. Þetta þingmál hefur reyndar valdið mér nokkrum heilabrotum, ekki síst þar sem það er borið fram af formanni þingflokks Framsfl. og samflokksmanni dómsmrh. Hér er tekinn út einn þáttur af fjölmörgum afriðum í umferðarlögunum sem þarf að endurskoða og sem eru í endurskoðun. Án þess að það segi nokkuð um afstöðu mína til þessa sérstaka þáttar sé ég ekki þá brýnu nauðsyn sem hv. flm. telur á því að taka þennan þátt fram yfir alla aðra nema þá að þetta sé eitthvað persónulegt, að hann sé e.t.v. orðinn svo hlaðinn sektarmiðum vegna hraðferða milli kjördæmisins og vinnustaðar að hann rísi ekki undir þessu öllu lengur.
Það hafa komið fram ýmsar tillögur varðandi umferðarmál á þessu kjörtímabili. T.d. um sektarákvæði varðandi notkun bílbelta og um aukna notkun ökuljósa. Hvort tveggja eru það mál sem af kunnáttumönnum eru talin mundu draga mjög úr umferðarslysum og að mínu mati væri brýnna að taka á en þetta sérstaka mál.
Eins og báðir hv. ræðumenn á undan mér hafa nefnt hafa umferðarlögin verið í gagngerðri endurskoðun og það mjög lengi. Frv. um þau hafa verið til umfjöllunar á tveimur síðustu þingum. Það olli nokkrum vonbrigðum þegar frv. kom fram á síðasta þingi að það hafði engum eða a.m.k. mjög litlum breytingum tekið á milli þinga. Þó höfðu komið fram mjög margar athugasemdir varðandi það frv. En mér er fullkunnugt um að á s.l. sumri fór fram mjög mikið starf sem einmitt átti að verða til að auðvelda umfjöllun málsins í vetur. Hv. allshn. Ed. vann á milli þinga að endurskoðun frv. í samræmi við þær fjölmörgu athugasemdir sem höfðu verið gerðar við frv. og ég stóð í þeirri meiningu og ég veit að það hafa margir gert að hæstv. dómsmrh. hefði fullan hug á því að fá lög um þessi efni afgreidd á því þingi sem nú er hafið. Þess vegna spyr ég hæstv. dómsmrh. hvað líði því máli, hvort boðað frv. um umferðarlög sé ekki væntanlegt á þessu þingi og ef svo er ekki, hvað tefji þá þetta m,ál, hvort það séu einhver atriði sem stjórnarflokkarnir eru ósammála um. Ég spyr vegna þess að það hlýtur að hvarfla að manni að eitthvað liggi þar að baki þegar þm. úr öðrum stjórnarflokknum sér ástæðu til að taka eitt atriði út úr og flytja um það sérstakt þingmál. Þess vegna vona ég að hæstv. dómsmrh. sjái sér fært að svara fsp. minni hér og nú.