20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2228 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)

1. mál, fjárlög 1987

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Samkvæmt till. þessari er gert ráð fyrir að hefja hönnun húss sem aldrei hefur verið samþykkt að byggja. Málið hefur aldrei verið rætt á Alþingi, aðeins kynnt í þingflokkum. Þar að auki er fásinna að byggja hér hús af þessari stærð, gerð og útliti sem engin þörf er á vegna starfa Alþingis og verður vonandi aldrei byggt. Ég segi nei.

Brtt. 418,1 samþ. með 52 shlj. atkv.