20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2230 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

1. mál, fjárlög 1987

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Á meðan stjórnarliðið leggst gegn hækkuðum fjárveitingum til fatlaðra, okkar minnstu bræðra, er ég andvígur því að byggja reiðhöll í Reykjavík. Því segi ég nei.